Desemberuppbót 2015
23 nóv. 2015
Athygli er vakin á desemberuppbót, sem kemur til greiðslu
1.-15. desember n.k.
Samkvæmt kjarasamningi Grafíu.FBM/SA og Grafíu.FBM/FA.SÍA skal upphæðin vera
kr. 78.000 til þeirra sem unnið hafa fullt starf 1.12.2014 til 30.11.2015.
Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við
starfstíma. Sjá nánar í kjarasamningum.