Fréttir

Atvinnustaða félagsmanna í ágúst 2010

30 ágú. 2010

Samkvæmt skilagrein frá Vinnumálastofnun fyrir júlí 2010 voru 7,3% virkra félagsmanna 100% atvinnulausir og fá greitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

Nokkrir eru að vinna uppsagnarfrest og munu fara á atvinnuleysisbætur, en allnokkrir sem hafa misst vinnu hafa þegar fengið aðra eða eru farnir í nám.

Nú eru mun færri í skertu starfshlutfalli en voru á árunum 2008 og 2009. Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir félagsmenn eru í skertu starfshlutfalli í dag.

 

Reykjavík, ágúst 2010.

Fh. Félags bókagerðarmanna

Georg Páll Skúlason, formaður

Til baka

Póstlisti