Fréttir

ASÍ, SA og RSK í samstarf gegn svartri atvinnustarfssemi

16 jún. 2011

Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri hafa tekið höndum saman í baráttunni gegn skattsvikum. Átakið sem ber yfirskriftina, Leggur þú þitt af mörkum, er ætlað að hvetja atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Athyglinni verðu beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Átakið er hluti af nýgerðum kjarasamningum.

Áhersla verður á að svört atvinnustarfssemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild. Átakið mun standa fram á haust og mun 12-14 manna teymi undir forystu Ríkisskattstjóra fara á milli fyrirtækja og upplýsa og leiðbeina hvernig eigi að standa rétt að málum þegar kemur að ráðningum og skattaskilum.

Markmið verkefnisins er að stuðla að betri tekjuskráningu, tryggja að starfsmenn séu skráðir á launaskrá og að farið sé að lögum og reglum. Um leið er hvatt til þess að opinber gjöld skili sér á réttum tíma ásamt lögboðnum og samningsbundnum framlögum til lífeyrissjóða og gjöldum til stéttarfélaga.

Á fréttamannafundi þar sem átakið var kynnt, kom fram að hér væri um framhald af átaki um vinnustaðaskírteini sem ASÍ og SA hafa staðið fyrir að undanförnu. Áherslan er að hér sé einn vinnumarkaður þar sem allir spila eftir sömu leikreglum. Þegar margir svindla á leikreglunum getur það sýkt heilu atvinnugreinarnar með þeim afleiðingum að samkeppnishæfnin skekkist. Þá standa þeir höllum fæti sem sýna samfélagslega ábyrgð og eru með sitt á hreinu. Þannig samfélag viljum við ekki.

Frá fréttamannafundi þar sem átakið var kynnt 14. júní. Fv. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA.

Til baka

Póstlisti