Fréttir

Páskaúthlutun 2013

17 jan. 2013

Um páskana 2013 (27. mars- 3. apríl) eru til leigu:

Hús 1, 2 og 7 í Miðdal – með heitum potti
1 hús í Ölfusborgum – með heitum potti
1 hús á Illugastöðum – með heitum potti
1 íbúð á Akureyri – Furulundur 8T

Leigugjald fyrir hús 1, 2 og 7 í Miðdal er 21.500 kr. og
Ölfusborgum, Illugastöðum og Akureyri 19.000 kr.

Hús 5 í Miðdal verður ekki inni í úthlutun heldur gildir fyrstu kemur fyrstu fær og geta félagsmenn FBM bókað húsið á orlofsvef félagsins. Leigugjald er 14.500 kr.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir  á orlofsvef félagsins
www.orlof.is/fbm
Einnig er hægt að hringja á skrifstofu FBM eða senda tölvupóst á netfangið fbm@fbm.is

Leiðbeiningar með umsókn á vefnum:

Smellið á Páskaúthlutun 2013 í gráu stikunni, sláið inn kennitölu og lykilorð, við fyrstu innskráningu þá þarf að velja lykilorð og skrá netfang.

Veljið orlofshús eftir forgangi t.d. hús 1 í fyrsta val, hús 2 í annað val og svo framvegis.  smellið á senda umsókn.

Umsóknir þurfa að berast skrifstofu félagsins
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 11. febrúar n.k.
 
Úthlutunarkerfi orlofshúsa er tölvuvætt og mun punktainneign ráða úthlutun um
páskana. Páskaleiga minnkar punktainneign um 12 punkta. Þeir sem fengið hafa úthlutað
um páska þrjú síðastliðin ár eru ekki í forgangshópi.

Til baka

Póstlisti