Fréttir

Atvinnuleysisbætur hækka

7 jún. 2011

Atvinnuleysistryggingar hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur hækka um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þær  verða því kr. 161.523 á mánuði í stað kr. 149.523 áður. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkar einnig og verður að hámarki kr. 254.636  á mánuði.
Jafnframt verður greidd út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa verið tryggðir á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí s.l. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt í hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar.  Eingreiðslan verður greidd 10. júní nk.

Til baka

Póstlisti