Fréttir

Félag bókagerðarmanna styrkir björgunarstarf á Haíti

2 feb. 2010

haiti
Frá vinstri, Georg Páll Skúlason, Þorkell S. Hilmarsson og Kristján Sturluson.

Félag bókagerðarmanna ákvað á fundi stjórnar í síðustu viku að styrkja söfnun Rauða kross Íslands um kr. 250.000 vegna aðstoðar við íbúa Haíti, sem eiga um sárt að binda vegna jarðskjálfta sem reið yfir landið þann 12. janúar s.l. og fjölda eftirskjálfta í kjölfarið.

UNI, alþjóðlegt samband verkalýsfélaga, beindi þeim tilmælum til aðildarfélaga sinna að þau styrktu hjálparsamtök hvert í sínu landi og í framhaldi af því afhentu Þorkell S. Hilmarsson gjaldkeri og Georg Páll Skúlason formaður Félags bókagerðarmanna Kristjáni Sturlusyni framkvæmdastjóra Rauða kross Íslands styrkinn.

Til baka

Póstlisti