Rúnar og Ísak sigruðu Bridgemót GRAFÍU 2016
14 nóv. 2016
Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson sigruðu tvímenningskeppni GRAFÍU sem haldin var sunnudaginn 13. nóvember s.l.
Sex pör mættu til leiks. Keppt var um rétt til þátttöku á bridgehátíð Bridgesambands Íslands og einnig voru veitt bókaverðlaun.
Í fyrsta sæti urðu Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson með 73 stig, í öðru sæti Sigurður Sigurjónsson og Guðni Ingvarsson með 68 stig og í þriðja sæti Sæmundur Árnason og Jón Ingi Ragnarsson með 61 stig. Spilastjóri var Rúnar Gunnarsson.
.
F.v. Guðni, Sigurður, Ísak Örn, Rúnar, Sæmundur og Jón Ingi
f.v. Sveinn, Rúnar, Þórarinn og Ísak Örn.