Um 79% af bókatitlum prentaðir á Íslandi
2 des. 2009
Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2009. Mikil fjölgun hefur orðið á prentun titla innanlands frá síðasta ári eða um 26% prósentustig. Um er að ræða hæsta hlutfall á prentun bókatitla innanlands frá því að könnun þessi var gerð fyrst árið 1998.
Heildarfjöldi bókatitla er 673 í Bókatíðindunum í ár en var 710 árið 2008.
Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum. Eftirfarandi niðurstöður eru úr þeim samanburði:
• Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 178; 163 (92%) eru prentaðar á Íslandi og 15 (8%) prentaðar erlendis.
• Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 191; 170 (89%) prentuð á Íslandi og 21 (11%) prentuð erlendis.
• Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 155; 120 (77%) prentaðar á Íslandi og 35 (23%) prentaðar erlendis.
• Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 149; 76 (51%) prentaðar á Íslandi og 73 (49%) prentaðar erlendis.
Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2008:
Árið 2009 | Fjöldi titla | % |
Ísland | 529 | 78,6 |
Asía | 63 | 9,4 |
Evrópa | 47 | 7,0 |
önnur norðurlönd | 34 | 5,0 |
Samtals | 673 | 100 |
Árið 2008 | Fjöldi titla | % |
Ísland | 377 | 53,1 |
önnur norðurlönd | 131 | 18,5 |
Asía | 115 | 16,2 |
Evrópa | 87 | 12,2 |
Samtals | 780 | 100 |