Fréttir

68% af bókatitlum prentaðir á Íslandi

25 nóv. 2011

68% af bókatitlum prentaðir á Íslandi

Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2011. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dragast saman um rúmlega 3 prósentustig milli ára en árið 2010 var 71,4% hlutfall á prentun bókatitla innanlands.

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 690 í Bókatíðindunum í ár en var 710 árið 2010

 

Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum. Þar kemur fram að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis en það er m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameiginlega fyrir mörg lönd.

 

·        Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 203; 148 (73%) eru prentaðar á Íslandi og 55 (27%) prentaðar erlendis.

·        Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 182; 156 (86%) prentuð á Íslandi og 26 (14%) prentuð erlendis.

·        Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 110; 83 (75%) prentaðar á Íslandi og 27 (25%) prentaðar erlendis.

  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 195; 83 (43%) prentaðar á Íslandi og 112 (57%) prentaðar erlendis.

Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi og hlutfall af heild, jafnframt eru til samanburðar tölur fyrir árið 2010:

Árið 2011 Fjöldi titla %
Ísland 470 68,1
Asía 119 17,2
Evrópa 100 14,6
Annað 1 0,1
Samtals
690
100
Árið 2010 Fjöldi titla %
Ísland 507 71,4
Asía 130 18,3
Evrópa 73 10,3
Samtals 710 100

 

 
 

 

Til baka

Póstlisti