Fréttir

Niðurstaða úr samkeppni um merki Grafíu

8 feb. 2016
Okkur er það mikil ánægja að tilkynna verðlaunahafann í samkeppninni um merki Grafíu. Loftur Leifsson, grafískur hönnuður á tillöguna sem bar sigur úr bítum. Afhending verðalauna var föstudaginn 5. febrúar, á degi íslensks prentiðnaðar sem haldinn var hátíðlegur í IÐUNNI prent- og miðlunarsviði. Innsendingar voru 153 frá 52 einstaklingum. 16 merki komust í úrslit og […]

Verðlaunakrossgáta PRENTARANS

7 feb. 2016
Dregið hefur verið úr réttum lausnum í Verðlaunakrossgátu PRENTARANS. Ragnheiður Linda Eyjólfsdóttir hlaut 1. verðlaun sem er kr. 20.000,- og Guðmundur Þ. Egilsson hlaut 2. verðlaun sem er helgardvöl að eigin vali í orlfoshúsum Grafíu í vetur. Við viljum þakka öllum þátttakendum fyrir innsendar lausnir.

Félagsfundur, mánudaginn 8. febrúar

1 feb. 2016
Félagsfundur Grafíu verður á mánudaginn 8. febrúar n.k., á Stórhöfða 31, 1. hæð. Sjá nánar auglýsingu hér

PRENTARINN er kominn á vefinn

22 jan. 2016
Við viljum vekja athygli á því að prentarinn er kominn á vefinn. Sjá hér  Einnig viljum við minna á að síðasti dagur til að senda inn lausn á krossgátunni er 30. janúar nk.

Kosning stjórnar og varastjórnar Grafíu 2016

19 jan. 2016
Framboðsfrestur vegna kosningu stjórnar og varastjórnar Grafíu 2016 Í samræmi við lög félagsins lýkur á næsta aðalfundi tveggja ára kjörtímabili þriggja aðalstjórnarmanna. Hér með er lýst eftir uppástungum um þrjá félagsmenn til setu í aðalstjórn næstu tvö ár og tvo félagsmenn til setu í varastjórn. Sjá nánar hér  

Páskaleiga orlofshúsa Grafíu

19 jan. 2016
Eindagi til að skila inn umsóknum vegna páska er fyrir kl. 16 mánudaginn 8 febrúar 2016 Opnað hefur verið fyrir umsóknir á orlofsvef félagsins sjá hér Sjá einnig nánar auglýsinguna hér   PÁSKALEIGA ÖLFUSBORGA OG LJÓSHEIMA 10, 4 hæð Opnað hefur verið fyrir útleigu páskavikunnar 23.-30. mars á orlofsvef félagsins. Fyrirkomulagið er með þeim hætti […]

DAGUR ÍSLENSKS PRENTIÐNAÐAR 5. FEBRÚAR

15 jan. 2016
Dagur íslensks prentiðnaðar verður haldinn í IÐUNNI þann 5. febrúar, milli kl. 15.00 og 18.00 með rúmlega tuttugu stuttum fyrirlestrum um prentverk, tækni, umbúðir, ásamt ýmsu blandi í poka. Eftir fyrirlestra verður deginum slúttað með hressandi uppákomum og veitingum, þá verður einnig kynnt niðurstaða úr logosamkeppni Grafíu. 

Nýr kjarasamningur ASÍ og SA

14 jan. 2016
Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnlífsins. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2018. Sjá fréttatilkynningu hér Sjá kjarasamning hér

Nýr kjarasamningur ASÍ og SA (2)

14 jan. 2016
Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnlífsins. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2018. Sjá fréttatilkynningu hér Sjá kjarasamning hér

Georg Páll Skúlason formaður Grafíu 2016 – 2018

12 jan. 2016
Eindagi til að skila inn framboðum til formanns í Grafíu – stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum rann út 8. janúar s.l.  Eitt framboð barst, um Georg Pál Skúlason núverandi formann, hann telst því réttkjörinn formaður félagsins árin 2016 – 2018 Stjórn Grafíu stéttarfélags.

Póstlisti