Fréttir

Opnunartími um hátíðirnar – Gleðilega hátíð

23 des. 2015
24. desember aðfangadagur lokað. 28. desember opið kl. 13 – 16 31. desember gamlársdagur lokað 4. janúar opið kl. 13 – 16

Samkeppni um hönnun á nýju einkennismerki fyrir félagið

15 des. 2015
Grafía, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands efnir til samkeppni um einkennismerki fyrir félagið.     Félagið stendur nú á tímamótum þar eð nafninu var breytt nýverið úr Félagi bókagerðarmanna í Grafíu. Nafnabreyting félagsins kallar á nýtt merki. Samkeppnin er öllum opin en veitt verða ein verðlaun að upphæð 750.000 kr. fyrir […]

Jólaskemmtun Grafíu 2015

11 des. 2015
Jólaskemmtun Grafíu verður þann 29. desember frá kl. 17.00 – 19.00 Sjá nánar hér

FRAMBOÐSFRESTUR – formannskjör

1 des. 2015
Uppástungur um formann Grafíu – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum fyrir kjörtímabilið 2016 -2018 Sjá nánar hér

Flestir bókatitlar enn prentaðir á Íslandi

30 nóv. 2015
Prentstaður íslenskra bóka 2015 Bókasamband Íslands hefur kannað prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2015. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 334 og fækkar um 43 frá fyrra ári og sem hlutfall af heild dregst það saman milli ára um  rúmlega 7%, er 51,8% í ár en árið 2014 […]

Desemberuppbót 2015

23 nóv. 2015
Athygli er vakin á desemberuppbót, sem kemur til greiðslu 1.-15. desember n.k. Samkvæmt kjarasamningi Grafíu.FBM/SA og Grafíu.FBM/FA.SÍA skal upphæðin vera kr. 78.000 til þeirra  sem unnið hafa fullt starf 1.12.2014 til 30.11.2015. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma. Sjá nánar í kjarasamningum.

Uppsagnir í Odda – Undir í samkeppni vegna ...

2 nóv. 2015
Eftirfarandi frétt birtist á Mbl. 2. nóvember 2015 Tólf starfs­mönn­um prent­smiðjunn­ar Odda hef­ur verið sagt upp í hagræðing­ar­skyni. Bald­ur Þor­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Odda, seg­ir aðgerðirn­ar hafa verið nauðsyn­leg­ar þar sem sam­drátt­ur hafi orðið á verk­efn­um miðað við áætlan­ir. Sam­keppni við er­lenda aðila hafi gengið illa vegna sterks geng­is krón­unn­ar. Upp­sagn­irn­ar náðu til allra deilda fyr­ir­tæk­is­ins og […]

Rúnar og Ísak Örn sigruðu bridgemót Grafíu 2015

1 nóv. 2015
  Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson sigruðu tvímenningskeppni Grafíu sem haldin var sunnudaginn 1. nóvember s.l. Sex pör mættu til leiks. Keppt var um rétt til þátttöku á bridgehátíð Bridgesambands Íslands og einnig voru veitt bókaverðlaun.   Í fyrsta sæti urðu Rúnar Gunnarsson og Ísak Örn Sigurðsson með 83 stig, í öðru sæti Guðjón […]

Formannafundur ASÍ – ályktun um kjaramál

28 okt. 2015
Ályktun um kjaramálSamþykkt á formannafundi ASÍ 28. október 2015 Formannafundur ASÍ lýsir yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og kjaramála. Skortur á samstöðu, órói og átök hafa einkennt íslenskan vinnumarkað, allt frá því að þeirri launastefnu sem samið var um á almennum vinnumarkaði í árslok 2013 var hafnað. Síðan þá hefur hver hópur á vinnumarkaði farið […]

Eggert Ísólfsson sigraði hraðskákmót Grafíu 2015

26 okt. 2015
   Eggert Ísólfsson  Skákmót Grafíu var haldið sunnudaginn 25. október. Sex þátttakendur mættu til leiks. Eggert Ísólfsson sigraði mótið með 8 vinninga af 10 mögulegum. Í öðru sæti var Jón Úlfljótsson með 7 ½ vinning og í þriðja sæti Georg Páll Skúlason með 7 vinninga. Tefldar voru 5 mínútna skákir allir við alla tvöföld umferð.

Póstlisti