Fréttir

Námskeið IÐUNNAR fræðsluseturs á vorönn 2019

28 jan. 2019
Grafía vill vekja athygli á því að nú eru hafin námskeið á vorönn hjá IÐUNNI fræðslusetri. IÐAN gefur ekki lengur út hefðbundinn námsvísi heldur eru allar upplýsingar um námskeið birtar á heimasíðunni þeirra. Í boði eru yfir 140 námskeið og fleiri væntanleg á vefinn. Sjá nánar hér: https://www.idan.is/frettir/stok-frett/2019/01/19/Voronn-2019-er-hafin/

Dagur prents og miðlunar 2019

22 jan. 2019
Dagur prents og miðlunar verður nú haldinn í fimmta sinn,  þann 25. janúar nk. Eins og alltaf verður þar skemmtileg blanda af fræðslu í formi erinda og kynninga, uppistand frá Ara Eldjárn og léttar veitingar. Dagurinn hefst stundvíslega kl. 15.00 Sjáðu dagskrána hér

Kosning stjórnar og varastjórnar 2019

22 jan. 2019
Framboðsfrestur vegna kosningu stjórnar og varastjórnar GRAFÍU Sjá nánar í auglýsingu Auglýsing  

Samningaviðræður við SA

11 jan. 2019
11. janúar Í vikunni hafa verið haldnir fjölmargir samningafundir með viðsemjendum okkar hjá Samtökum atvinnulífsins. Sérkröfur iðnaðarmannafélaganna hafa verið ræddar sem er mikilvægt í þessu ferli. Dæmi um okkar kröfur er stytting vinnuvikunnar. Iðnaðarmenn vinna almennt mikla yfirvinnu. Þeir vilja skiljanlega draga úr heildarvinnutímanum. Iðnaðarmenn eiga að geta lifað mannsæmandi lífi á laununum án þess […]

Kjarakönnun Grafíu

20 des. 2018
Hér má finna kjarakönnun Grafíu og Samtaka iðnaðarins sem framkvæmd var af Gallup á haustmánuðum 2018 Kjarakönnun 2018

Bridgemóti GRAFÍU frestað

12 des. 2018
Því miður þarf að fresta Bridgemóti GRAFÍU vegna forfalla. Mótið verður auglýst síðar.

Ögmundur Kristinsson skákmeistari GRAFÍU

12 des. 2018
Skákmót GRAFÍU var haldið sunnudaginn 16. desember. Fimm þátttakendur mættu til leiks. Ögmundur Kristinsson sigraði mótið með 7 ½ vinning af 8 mögulegum. Í öðru sæti var Eggert Ísólfsson með 6 vinninga og í þriðja sæti Georg Páll Skúlason með 3 ½ vinning. Tefldar voru 5 mínútna skákir allir við alla tvöföld umferð. Skákmót -2018

Fréttatilkynning frá Bókasambandi Íslands

11 des. 2018
Sjá hér könnun Bókasamband Íslands vegna prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum. Frettatilkynning BS 7.12.2018

Kjaraviðræður iðnaðarmannafélaganna og SA hófust 30. nóvember

30 nóv. 2018
Fulltrúar iðnaðarmannafélaganna, VM, RSÍ, MATVÍS, GRAFÍU, Samiðn og Félags hársnyrtisveina, hafa í dag fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins. Kröfur iðnaðarmannafélaganna voru lagðar fram vegna yfirstandandi viðræðna um endurnýjun kjarasamninga sem renna úr gildi þann 31. desember næstkomandi. Iðnaðarmannafélögin leggja upp í viðræður með skýr markmið að leiðarljósi. Tryggja verður áframhaldandi kaupmáttaraukningu launa, breyta verður taxtakerfi […]

Prentmet fullvinnur allar tegundir bóka !

30 nóv. 2018
Vegna fréttaflutnings undanfarna daga vilja forráðamenn Prentmets leiðrétta þann misskilning að ekki sé hægt að endurprenta jólabækur hérlendis. Árið 2003 keypti Prentmet Félagsbókbandið Bókfell og samhliða því kom mikið af reynslumiklu starfsfólki til starfa hjá Prentmet. Prentmet er í dag eina prentsmiðja landsins sem getur fullunnið harðspjaldabækur og getur framleitt allar gerðir bóka. Höfum í gegnum […]

Póstlisti