Fréttir

Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu

15 feb. 2023

Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2023 til 2025.

Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (karl) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.

Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.10) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.

Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 1. mars 2023.

Fyrirspurnir skulu einnig berast á netfangið: valnefnd@birta.is

Skjöl sem tilheyra kjöri fulltrúa launamanna í stjórn Birtu:

  • Auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 15. febrúar.
  • Eyðublað um framboð til setu í stjórn Birtu lífeyrissjóðs.
  • Starfsreglur valnefndar launamanna Birtu lífeyrissjóð

Til baka

Póstlisti