Fréttir

Virðingarleysi og félagsleg undirboð

12 des. 2024

Fagfélögin fordæma harðlega tilraunir hóps veitingamanna til að grafa undan þeim árangri sem alvöru stéttarfélög hafa unnið baki brotnu að fyrir hönd launafólks undanfarna áratugi. Fagfélögin taka heilshugar undir málflutning Eflingar og ASÍ í þessu máli.

Stofnun gervistéttarfélagsins Virðingar og kjarasamningur félagsins við SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, er aðför að kjarabaráttu og réttindum starfsfólks í veitingageiranum. ASÍ hefur bent á að í Virðingu séu í það minnsta tveir stjórnarmenn sem komi beint að rekstri veitingastaða sem starfi innan SVEIT. Atvinnurekendur eru þannig að reyna að semja við sjálfa sig. Það eitt og sér er ömurleg framkoma við starfsfólk.

Í þeim kjarasamningi sem umræddir veitingamenn hafa gert við sjálfa sig felast skert launakjör, lenging dagvinnutíma, lægra álag vegna kvöldvakta og niðurfærsla orlofsréttinda svo eitthvað sé nefnt. Allt ber þetta að þeim brunni að níðast á launafólki í veikri stöðu; mest ungu fólki og innflytjendum.

Skemmst er að minnast þess að SVEIT hefur, í þeirri viðleitni að rýra kjör starfsfólks í veitingageiranum, árangsurslaust reynt að hafa samningsréttinn af Samtökum atvinnulífsins.

Fagfélögin skora á starfsfólk í veitingageiranum að hafna aðild að gervistéttarfélaginu Virðingu og láta ekki undan þrýstingi vinnuveitenda þar að lútandi. Enn fremur skora Fagfélögin á aðstandendur Virðingar að láta af tilraunum sínum til félagslegra undirboða á íslenskum vinnumarkaði.

Fagfélögin

Til baka

Póstlisti