Samkomulag við SA í höfn – kjarasamningar halda gildi sínu
15 okt. 2026
Fagfélögin, VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna hafa náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið náðist laust fyrir klukkan 16 í dag, á ögurstundu, og felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar að stytta gildistíma samninganna ef verðbólga verður yfir tilteknum viðmiðum haustið 2027. Kjarasamningarnir halda því gildi sínu.
Sjá nánar í frétt á rafis.is https://rafis.is/2026/10/08/16211/