Framboðsfrestur vegna trúnaðarráðs
3 sep. 2026
Framboðsfrestur við kosningar til Trúnaðarráðs GRAFÍU stéttarfélags kjörtímabilið 2026 – 2028
Í samræmi við lög félagsins (sbr. 6. og 7. kafla) er hér með lýst eftir tillögum um 8 aðalmenn til setu í Trúnaðarráðinu og 3 til vara.
Tillögur um félagsfólk í Trúnaðarráð skulu studdar af að lágmarki 20 félagsmönnum.
Frestur til að skila tillögum um félagsmenn í Trúnaðarráðið rennur út fimmtudaginn 1. október n.k. kl. 16.00 og skal tillögum skilað á skrifstofu félagsins, að Stórhöfða 31 Reykjavík.
Vakin er athygli á því, að þegar fleiri en eitt framboð berast er öllum frambjóðendum raðað á kjörseðil eftir hlutkesti.
„Þau 8 sem flest atkvæði fá teljast réttkjörin aðalmenn og þau 3 sem næst koma í atkvæðamagni teljast rétt kjörin varamenn.“
Reykjavík, 3. september 2026
Stjórn Grafíu stéttarfélags