Catégorie: Óflokkað
9. nóvember, 2017
Óflokkað
Tvímenningsmót GRAFÍU verður haldið laugardaginn 9. desember kl. 13 Mótið verður haldið í húsnæði Rafiðnaðarskólans Stórhöfða 27. 1. hæð (gengið inn Grafarvogsmegin) Spilastjóri er Rúnar Gunnarsson. Veitt verða bókaverðlaun fyrir 3 efstu sætin auk þess sem sigurvegarar fá rétt til að mynda par eða sveit á Briddshátíð Bridgesambands Íslands. Sjá auglýsingu hér: Bridgemót-2017
1. nóvember, 2017
Óflokkað
Útskriftarnemendur Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun og prentun, bjóða þér á sýningu laugardaginn 4. nóvember kl. 13:00-15:00. Líttu við og fagnaðu áfanganum í Vörðuskóla við Skólavörðuholt. Inngangur frá Barónsstíg. Allir velkomnir
30. október, 2017
Óflokkað
Iðnaðarmannafélögin, GRAFíA, MATVÍS – matvæla og veitingasamband Íslands, FIT félag iðn og tæknigreina, RSÍ – Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn og Byggiðn – félag byggingamanna hafa keypt saman Stórhöðfa 31. Félögin munu hefja samstarf í húsinu á næsta ári en félögin sem fyrir eru í húsinu, RSÍ, MATVÍS og GRAFÍA, munu starfa áfram þar á sama tíma […]
19. október, 2017
Óflokkað
(English and Polish version below) Kæri viðtakandi, Bjarg Íbúðafélag, stofnað af ASÍ og BSRB, er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Bjarg leitar nú til félagsmanna ASÍ og BSRB í tengslum við áherslur og þarfir við hönnun nýju leiguíbúðanna. Innlegg félagsmanna er afar mikilvægt í […]
10. október, 2017
Óflokkað
Við minnum félagsmenn á að taka þátt í kjarakönnun GRAFÍU og SI. Þátttakendur geta átt von á 10.000 kr. gjafabréfi. Sjá auglýsingu hér
14. september, 2017
Óflokkað
Námsvísir IÐUNNAR fræðsluseturs fyrir haustönn 2017 er kominn út. Yfir 150 spennandi námskeið fyrir fagfólk í iðnaði eru í boði á haustönn. Kynntu þér fjölbreytt úrval námskeiða á vef IÐUNNAR (www.idan.is) eða skoðaðu námsvísinn í heild sinni hér (https://issuu.com/idan-fraedslusetur/docs/idan-namsvisir-haust-2017). Skráning á námskeið fer fram á vef IÐUNNAR (www.idan.is).
21. ágúst, 2017
Óflokkað
GRAFÍA stéttarfélag auglýsir eftir umsjónaraðila orlofssvæðis félagsins í Miðdal, Bláskógabyggð. Í starfinu felst almenn umsjón og viðhald orlofshúsa og orlofssvæðis. Heilsársbúseta er skilyrði. Starfinu fylgir íbúðarhúsnæði og aðstaða í útihúsum. Starfið er hlutastarf að vetri en fullt starf yfir sumartímann. Umsóknir sendist á georg@grafia.is eða til GRAFÍU stéttarfélags, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík merkt „Miðdalur“ Umsóknarfrestur […]
6. júlí, 2017
Óflokkað
Um er að ræða 10 ferðastyrki á IPEX 2017, sem fer fram dagana 31. október – 3. nóvember í Birmingham á Englandi. sjá auglýsingu hér
Óflokkað
Útskrift nýsveina fór fram í IÐUNNI fræðslusetri 22. júní s.l. Tólf nýsveinar útskrifuðust, þ.e. einn í bókbandi, þrír í prentun og átta í prentsmíði/grafískri miðlun. Nýsveinar, meistarar, prófnefndarmenn, kennarar úr Tækniskólanum og aðstandendur nýsveina mættu í útskriftarveislu sem IÐAN, GRAFÍA og Samtök iðnaðarins héldu þeim til heiðurs. Eftirtalin hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur á sveinsprófi. […]
23. júní, 2017
Óflokkað
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins vegna tilgreindrar séreignar voru samþykktar af fulltrúum á aukaársfundi Birtu lífeyrissjóðs í gær, 22. júní. Samþykktirnar hafa verið sendar Fjármálaeftirlitinu til umsagnar og bíða staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis. Sjá nánar í frétt á heimasíðu Birtu: https://birta.is/um-sjodinn/frettir/breytingar-%C3%A1-sam%C3%BEykktum-sj%C3%B3%C3%B0sins/ Sjá einblöðung hér
Síða 24 af 26« First«...10...2223242526»