Fréttir

Svanur Jóhannesson bókbindari og heiðursfélagi GRAFÍU er látinn

4 nóv. 2026

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svanur Jóhannesson bókbindari og heiðursfélagi GRAFÍU látinn 97 ára að aldri.
Svanur Jóhannesson, bókbindari, f. 23. september 1929. Varð félagi 1951. Nám í bókbandi 1947-1951 hjá Bókfelli hf. Í Reykjavík, í Iðnskólanum í Reykjavík 1949, sveinspróf 17. maí 1952. Nám í Héraðsskólanum í Reykholti 1944-1947.  Starfaði sem bókbindari í Bókfelli hf. 1947-1982, starfsmaður hjá Félagi bókagerðarmanna frá 1981 til 1997 er hann lét af störfum vegna aldurs.

Félagsstörf: Í stjórn Bókbindarafélags Íslands, ritari 1961-1965, varaformaður 1965-1968 og formaður 1971-1977. Í stjórn Félags bókagerðarmanna, ritari 1980-1984, varaformaður 1984-1988 og ritari 1988-1996. Í stjórn Lífeyrissjóðs bókbindara 1966-1968 og 1971-1980, fræðslunefnd í bókbandsiðn 1976-1987, úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta: bókbindara 1975-1980, bókagerðarmanna 1981-1995 og úthlutunarnefnd nr. 4 (bókagerðarmenn, starfsfólk í veitingahúsum, hágreiðslu- og hárskerasveinar frá 1995-1997. Í bókasafnsnefnd FBM frá 1981-1997, öryggisnefnd prentinðarins frá 1983 – 1997, endurskoðandi Lífeyrissjóðs bókagerðarmanna 1985-1995, í stjórn Bókasambands Íslands frá stofnun þess 1986 – 1997 í stjórn fræðlusjóðs FBM frá 1992-1997, í faghópi bókbands frá 1996 – 1997 og fjölmörg önnur nefndarstörf. Í stjórn Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík í nokkur ár, varaformaður 1955.

Ritstörf: Ritstjóri Iðnnemans 1950-1951. Í ritnefnd Bókbindarans 1956-1973. Drög að bókbindaratali I. A-G (16 bls.) fylgiriti Bókbindarans 1965, II. H-S (bls. 17 -32), sérútgáfa 1969. Bókbindarartal A-Ö, formáli og bls. 23-154 í bókinni Bókagerðarmenn, Rvík, 1976. Fjöldi greina í Prentaranum frá 1981. Þýddi og sá um útgáfu á sýningarskrá norrænu bókbandskeppninnar, Rvík 1991. Í ritnefnd bókarinnar Prent eflir mennt eftir Inga Rúnar Eðvarsson, sögu bókagerðar frá upphafi til síðari hluta 20. aldar, Rvík 1994. Í ritnefndum stéttartals og sögu bókagerðarfélaganna frá 1994-1997. Gaf út bókina Prentsmiðjueintök, prentsmiðjusögu Íslands 2014 og gaf út Prentsmiðjubókina, prentsmiðjur og prentfyrirtæki frá 1530-2020, sem prentað hafa íslensk rit á Íslandi, í Kaupmannahöfn og Hróarskeldu.

Veitti móttöku viðurkenningu frá Vinnueftirliti ríkisins, fyrir hönd Öryggisnefndar prentiðnaðarins 1990 fyrir störf að vinnuverndarmálum.

Heiðursfélagi Félags bókagerðarmanna 1997 (nú GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum).

Einn af stofnendum Prentsöguseturs og var um árabil umsjónarmaður félagaskrár og gjaldkeri eins lengi og heilsan leyfði. Svanur lést 31. október 2026.

f.h. GRAFÍU stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum sendi ég vinum og ættingjum samúðarkveðjur. Hvíl í friði kæri félagi með þakklæti fyrir allt sem þú hefur unnið í þágu bókagerðar og prentiðnaðarins.

Georg Páll Skúlason, formaður

Til baka

Póstlisti